Mér er eiður sær!

Arna Þrándardóttir

30.05.2009 22:42:25 / Arna

Nú skil ég þetta mikið betur ! !


SÓSÍALISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra. 

KOMMÚNISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk. 

FASISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk. 

NASISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo. 

SKRIFRÆÐI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir 
svo allri mjólkinni. 

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast 
vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein 

SÚRREALISMI 
Þú átt 2 gíraffa. 
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám. 

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við 
fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna 
hún datt niður dauð. 


FRANSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess 
að þú vilt eiga þrjár kýr. 

JAPANSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en 
framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja 
teiknimyndahetju, "Kúmann", sem nær miklum vinsældum um allan heim. 

ÞÝSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í 
mánuði og mjólka sig sjálfar.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í 
gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í 
skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og 
skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 
6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur 
meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. 
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni 
til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum 
stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur 
almenningi í hlutafjárútboði. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 21:21:31 / Arna

Vorið er yndislegt!!!

Jey loksins er grasið farið að grænka og brum trjánna, sem lét blekkjast af ótímabærum hlýindakafla fyrir nokkru er tekið að springa út af krafti og er það vel.

Vorið og sumarið er minn uppáhalds tími en helvítis ofnæmið mitt setur alltaf strik í reikninginn. En það skal ekki fá að gera það i þetta sinn því ég er komin inn undir hjá snilldar lækni sem leggur sig alla fram um að gera líf mitt bærilegra. Guð launi henni fyrir það. Ef þið þjáist af ofnæmi eða asma eða því um líku mæli ég hiklaust með Unni Steinu, reyndar efast ég stórlega um að þið fáið tíma á morgun en kannski eftir nokkrar vikur;) Hún er alveg yndisleg....

Annars er nú allt bara við það sama, páskarnir liðnir og koma ekki strax aftur! Voru voða notalegir þetta árið sem og árin á undan.

Ætla að kaupa mér hjól við tækifæri.. svona kellingarhjól með breiðum hnakk svo hann sjáist en skerist ekki langleiðina upp í eggjastokka!
Annars er ég bara nokkuð spennt fyrir komandi tímum, er að útskrifast í júní og svo bara langt og gott sumarfrí:) Dásamlegt

Svo bara endilega vera dugleg að hringja og koma í heimsókn og svona ég hef svo gaman af því!

Kisskiss

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2009 23:29:08 / Arna

Ekki tilhlökkun = kvíði?

Jæja á morgun er komið að 24 afmælisdegi mínum um ævina!
Ég veit ekki hvað það er sem veldur en af einhverjum ástæðum er ég ekki vitund spennt. Sá grunur læddist að mér eitt andartak að þar spilaði ellikerling stóra rullu. En við frekari ígrundun kom í ljós að ellin er voða voða fjarri mér, nema þá kannski á sálinni.

Ég hef komist að því (reyndar ekki nýlega) að ég er afskaplega gömul sál. En ég ætla ekki að láta það stoppa mig af.

Ég talaði við góða vinkonu mína áðan sem sagði
Vinkonan: ,,Jæja er mín spennt"?
Ég: Nei ekki vitund...
Vinkonan: ,,af hverju ekki"
Ég: ,,Bara veit það ekki"
vinkonan: ,,jæja þá"

Í lok samtals sagði hún : ekki vera kvíðin...
Ég er sko alls ekki neitt kvíðin ég bara hlakka ekkert til!
Ég hef verið að vellta því fyrir mér núna í kvöld hvort að það sé ekki bara samfélagsástandið sem veldur þessu hugarangri en ekki há tala á afmæliskortunum.. Enda er aldur nú líka afskaplega afstæður!

Undanfarin ár hefur mér fundist ég standa í stað en allir í kringum mig eldast afskaplega, sérstaklega börnin, litlu angaskinnin eins og hann bróðir minn, sem skyndilega hætti að míga á sig og strjúka þumalputtann og fór að aka bíl og fá sér kærustu..
Veit ekki hvort ég á segja frá því en hugsa að ég láti það flakka.... mér varð það á að skoða fermingarblaðið sem kom með mogganum og meðan ég fletti ég því hugsaði ég um hvað það var nú stutt síðan maður var svona ungur og vitlaus, rétt 3-4 ár. En við frekari athugun kom í ljós að þann 18.apríl 2009 á Arna Þrándardóttir 10 ára fermingar afmæli. Hvorki meira né minna!
Fyrir 10 árum ..
  • # var árið 1999
  • # var ég 14 ára
  • # var mamma mín 41 árs
  • # var Baldur minn 10 ára (sofandi með Nátta sinn)
  • # var ég í 8. bekk að gera garðinn frægann
  • # var Davíð Oddsson forsætisráðherra (geri aðrir betur)
  • # vann ég í Gróðurhúsinu á Reykjum í Hrútafirði
  • # fór ég til Kanaríeyja um páska

Þetta man ég eins og það hafi gerst í gær og gott betur!!

Óska ykkur góðrar nætur!


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 12:50:03 / Arna

´91 módel

Sæl veri þið..

Góð vinkona mín lenti í því um daginn að skella sér út á lífið. Það væri ekki frásögufærandi nema vegna þess að hún er á lausu, í fyrsta sinn í nokkur ár. Þessi umrædda vinkona mín er gömul bekkjarsystir mín og þar af leiðandi jafngömul mér, fædd á því herrans ári 1985. Hún hugsaði sér gott til glóðarinnar að vera óháð og að geta tekið aðeins á því. Hún fer inn á skemmtistað í vígahug tilbúin að ráðast á bráð. Hún fer að dansa, ekki vill betur til en svo að þar er ekkert álitlegt fórnarlamb.. Æ Æ
Hún gefst þó ekki upp og heldur áfram í trylltum dansi ekki líður á löngu áður en inn í salinn gengur álitlegur foli. Þessi umrædda áður nefnda snót grípur gæsina og hendir sér í fang hans.  Þau dansa saman í villtum, trylltum og öfgakenndum dansi. Áður en langt um líður hefst hið óumflýjanlega kossaflens.. OH hann var æðislegur. Nokkrum dönsum og nokkrum kossum síðar. Er stefnan sett á barinn, hann bíður, sannur herramaður! Við barinn hefjast samræður í fyrsta sinn síðan þau hittust sjá þau annað og meira en ofan í kokið á hvort öðru. Þau spjalla, skiptast á símanúmerum og svo afréð stúlkan að spyrja á hvaða aldri graðfolinn væri... ,,Ég er 1991 módel" ,,Jaaaaáá, heyrðu vinkona mín er að bíða eftir mér við bara sjáumst bless bless"...

Þau hittust aftur.. Já
Í skólanum mánudeginum á eftir. Þið megið geta ykkur til hvernig augnablik það var.
Hann var alveg sami sjarmurinn, nikkaði til hennar og blikkaði, svakalegur töffari. Sendir svo sms og biður um að fá að sænga hjá snótinni. OHHH allur glans farinn.

Árið 1991  hóf snótin skólagöngu sína í 1. bekk í Foldaskóla, það ár fæddist prinsinn! 

En þetta er nú ekkert miðað við að mágur minn þykist eiga kærustu sem er fædd 1993 og hann er nokkuð eldri en ég :s 
Ég er vön! 

Kær kveðja Arna

» 17 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 15:51:58 / Arna

Facebook

Andlitsbókin hefur aldeilis gripið landann og mig þar með. Þetta er orðið algjört æði og má alls ekki á milli sjá hverjir eru háðastir þessu, áttræðar bóndakonur eða 12 ára grunnskólanemar þarna virðast allir finna sig, jafnt á kynslóðir.
Ég verð nú að viðurkenna að ég er ansi tæp með að vera SÝKT af fyrirbærinu ! Hefði aldrei trúað að svona lagað næði LÍKA til mín. Í ljósi þess að ég fékk gsm síma þremur árum seinna en flestar vinkonur mínar og dvd spilara þó nokkuð eftir á:S Annað er nú komið á daginn með þetta að ég þekki fáa sem horfa jafn mikið á dvd og ég og háðari er ég símanum en andskotinn! En ég er ekki frá því að símaveilan sé á undanhaldi... sem er vel.

 Vildi bara segja ykkur að ég lifði áramótin af og hef haft það fínt hingað til! Vonum bara að þjóðfélagsástandið fari að batna og allir geti tekið gleði sína á ný..


GLEÐILEGT ÁR og veri þið glöð og sæl!!

Bið að heilsa ykkur
ARNA
p.s Endilega svo bara að adda mér á face!!! ;-)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 20:51:47 / Arna

Push up = þrýsta upp, keyra upp

Þá er lífið komið í sitt hversdagslega horf..

Læra-vinna-skóli-sofa-borða-

-alveg búin að gleyma hvernig fallegi maðurinn í Varmahlíð lítur út..
-borða hádegismat
-sef lengur (þegar ekki er mæting kl 8)
-hlusta á jólalög
-knúsa Gulla
-hef það gott
-fer út að labba með Brekaling
-fæ óteljandi kossa á dag frá hinum og þessum
-loka eyrunum á fréttir
-pirra mig á mótmælendum sem eru með dólgslæti,
          -kasta eggjum?? 
          -hver á þrífa?
          -hverjir borga?
          -á hverjum bitnar eggjakast?

Orð mánaðarins og orðið yfir þetta lið sem grýtir eggjum:  
NIBBALDI (et) NIBBALDAR (ft) NIBBI (et. stytting)



Jákvætt.. ætla að byrja jólin snemma þetta árið af fullri alvöru. Hlusta á jólalög, skreyta, horfa á jólamyndir, vera í jólaskapi alveg fram yfir þrettándann:) Líka á mánudögum.. hehe
Ég fer í eitt heimapróf 3.-4. des. á eitt verkefni eftir og svo er þetta bara komið held ég. Voða huggulegur þessi desembermánuður hjá minni.

Búin að versla nokkrar jólagjafir og er ekki í neinu stressi, nema með að ákveða hvar ég á að vera á aðfangadag!!!
Heima hjá mér og fá mömmu, pabba, ömmu, afa og Balla til mín, Eða fara til mömmu og allir verða þar, eða að vera á Ölvaldsstöðum (nei það kom reyndar aldrei til greina)

Annars vil ég alltaf fara norður finnst ekki vera nein jól nema fara þangað, en ég fæ víst ekki að ráða því núna. Búið að ákveða að vera á höfuðborgarsvæðinu:´( 
Þá er það bara norðurland á áramótum:)

Annars bara keyra upp stemminguna!! Allir í jólafíling

Bið að heilsa sveinka og öllum
Adda padda 


Dæmi um hvernig nota má orð nóvembers
,,Lokurnar eru ekki nibbaldar á henni þessari" :)

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 12:23:13 / Arna

Stórar varir svo ekki sé nú talað um brjóstin...

Ég sit hérna á kennararstofunni í Varmahlíðarskóla með ,,inflation extreme" gloss á vörunum og heiftarlega þrá í gott knús. Var að hugsa hvort það væri hægt að maka svona gloss á brjóstin ef maður vill stækka þau. Ekki að ég vilji það, guð hjálpi mér nei! Bara að hugsa um þær sem það vilja og vantar stærri brjóst.

Þegar ég hugsa til þess að vettvangsnámi fer senn að ljúka fyllist ég hamingju en líka smá söknuði. Hamingjan er fólgin í þeirri staðreynd að ég komist heim til mín von bráðar og heimalingurinn ég fái brátt að sofa í mínu rúmi og sitja í mínum sófa, hitta Gulla minn og Breka, Veigu, Ingu og Sonný, familíuna og alla hina. Komist í vinnuna mína og hitti börnin ,,mín".
Söknuðurinn fellst einna helst í því að eyða ekki deginum á kennarastofu Varmahlíðarskóla, hitta ekki Völu á hverjum degi og hlægja mig máttlausa af vitleysisgangi, kúra í sófanum yfir góðri kvikmynd, sitja og njóta þess að horfa samkennara minn, hanga í tölvunni þá einna helst á andlitsbókinni. Guði sé lof fyrir hana og símann!

Þegar heim verður komið ætla ég aldeilis að taka til heima því ég þykist viss um hvernig ástandið þar er þrátt fyrir að hafa ekki verið þar í nokkrar vikur.
Ég ætla að knúsa alla í klessu, ég ætla að upphefja Veigu mína, ég ætla að halda áfram að borða ekki hádegismat:), ég ætla að vera góð við alla, reyna að komast yfir kattarhræðsluna, byrja á jólagjafakaupum, fá Elf lánaða hjá Sonný, komast í gírinn og njóta þess að fara ekki í neitt eiginlegt próf í desember:)

Ég hef bundist þessum firði traustum böndum og verð líkleg til þess að venja komur mínar hingað í framtíðinni, með Veigu minni. Ég er strax farin að hlakka til! Það er ekki bara fjörðurinn sem hefur bundið sig við mig heldur líka Vala við verðum áfram ótrúlega góðar vinkonur og almáttugur hvað ég á eftir hringja oft í hana í framtíðinni...


(þessar fá RISAknús eftir nokkra daga)

Ég hef lært frekar margt á þessum tíma hér, sérstaklega hef ég lært það hvað fólk er misjafnt og hvað grunnskólaárin skipta miklu máli í lífi hvers og eins.

Eitthver tíma ætla ég að verða kennari, hvenær það verður veit ég ekki. En ég ætla mér það í framtíðinni. Hef eiginlega ákveðið að taka smá hlé frá námi eftir þessa Bs gráðu. Hvort ég fer að kenna eftir hana eða síðar mun tíminn leiða í ljós:!::!:

Á föstudaginn fer ég til ömmu og afa en held svo áfram suður á laugardag.. Svo þið sem eruð sjúk í að hitta mig getið verið í sambandi á laugardag/sunnudag:haha: í síma 848-5310.
Bið að heilsa í bili, kisskiss

(Afi, Jakob, Rakel Ósk, Arnþór Egill og Ómar Smári á Ráninni á unglistahátíð í sumar)

Kveðja Arna



» 17 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 14:48:53 / Arna

Jólajólajólajóla

Þá hefur snjórinn loksins hlustað á ræðu mína og farið, sem er vel. Ég var alveg komin með ofnæmi fyrir þessum snjó, hann má koma í desember og standa fram yfir áramót.

En annars er alveg að koma tími á að ég leyfi mér að horfa á The Holiday en fyrir þá sem ekki vita þá var ég í banni hjá sjálfri mér að horfa á hana fyrr en 1. nóvember. Venjulega horfi ég á hana einu sinni í mánuði eða oftar en hef alveg staðið við þetta loforð síðan ég setti bannið sem var í janúar minnir mig:)

(fullkomnasta bíómyndaparið mitt í öllum heiminum, fæ gæsahúð)

Á síðasta fimmtudag komu foldópæjurnar til mín og við höfðum kósýstund í Háholtinu því að það var vetrarfrí hjá mér svo ég fór suður á miðvikudaginn og var fram yfir helgi. Hitti alla mína kæru vini og ættingja. Vænst þótti mér  þó um að hitta ömmu Gunnu sem var hress og gerði mig enn þá stoltari af því að vera afkomandi hennar. Hún er sem sagt á spítala og síðast þegar ég fór til hennar þá var henni farið að leiðast vistin og vildi komast á lappir... Hún sagði að það eina sem héldi í sér lífinu væri að vita að hún fengi gesti og svo sagði hún að það væri meira lánið yfir sér að hafa bunað úr sér öllum þessum börnum. Það er alveg satt hjá henni því án hennar hefði ÉG til dæmis aldrei verið ég.. Svo þakki þið ömmu fyrir að ég sé til:) hehe

Hef komist að því að Skagfirðingar eru upp til hópa ansi sérstakir... var ekki viss um hvort ég ætti að láta þetta flakka en geri það bara. Fæ þá kannski viðbrögð!! !

Á föstudaginn er planið að skjótast aðeins á Akureyri og sækja vistir. Því á skipulaginu hennar Völu er nefnilega innflutningspartý á laugardag og voru Hvanndalssystur beðnar um að mæta og halda uppi stuðinu en önnur sá sér engan veginn fært um að vera viðstödd svo að Hvanndalssystir verður að sjá um að leiða hópsöngin ein þetta sinnið.. Hún vill nú heldur kenna sviðskrekk hinnar alfarið um það að hún sjái sér ekki fært að mæta en að hún hafi eitthvað annað á prjónunum... Við þurfum að herða hana, því þessar systur ætla að verða frægar og gera það gott í reiðhallarpartýum og öðrum mannfögnuðum í framtíðinni.

Það styttist óðum í að ég komist heim og lífið fari í eðlilegar horfur. Ég er spennt þó að það sé yndislegt að vera hér hjá Völunni minni. Það er allt að gerast hjá okkur í sambandi við lokaverkefnið, komnar með leiðsagnar-kennara og góða hugmynd að verkefni meira að segja:) allt leyndó enn þá.

Svo er bara spurning um hvort að maður fari að kenna eftir útskrift eða fari í mastersnám:-S er alveg á gati í samabandi við þetta. Geti þið hjálpað mér???

Segi ekki meira í bili svo ég geti sagt ykkur fréttir fljótlega:)
kisskiss
ÖRNINN





» 20 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 13:44:30 / Arna

KENNARI

Ég held það bara..

Lífið hér í hlíðinn Vörmu er gott. Ég fór heim á miðvikudaginn var og var í Reykjavík fram á sunnudag. Ekkert meira um það að segja svo sem. Eyddi mestum tíma hjá ömmu Gunnu upp á spítala og átti með henni ,,Quality time".  Hún er snillingur eins og flestir vita.

Ég fer aftur í borgina á morgun því þá er vetrarfrí hjá þessum elskum hér. Þá verður tekið á því, hugsa að ég fari suður alla leið á morgun og jafnvel í Borgarfjörð á föstudag.

Ætla að reyna að komast í klippingu og reyna að vera sæt því það er svo gasalega myndarlegur kennari hérna í Varmahlíðinni.he he Verð að sýna mínar bestu hliðar og spila út trompunum!

En ekki meira um það. Á fimmtudaginn ætla skvísurnar mínar að koma í heimsókn í Háholtið og hlakka ég mikið til. Hef ekki hitt þær í ár og öld, það verður slúðrað og spjallað og hlegið og gleðst. Bíð spennt eftir því..
Kisskiss á alla:
Arna

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 11:28:47 / Arna

21. október. ALLT HVÍTT

Sæll öll sem eruð mér trú og lesið bloggið..

Í gær byrjaði að snjóa hér í Varmahlíð, alllt í lagi með það. Var meira svona eins og fjúk, örlítil ofankoma en ekkert til að tala um. Hálka og fínheit.
Í morgun þegar ég vaknaði leit ég einhverra hluta vegna út um gluggan og hvað haldi þið.. Allt á kafi í Varmahlíð, heppnar við Vala hugsaði ég að þurfa einungis að labba örfá skref út í skóla. Eennn Adam var ekki lengi í paradís því þegar ég opnaði hurðina tók þessi líka myndalegi skafl á móti mér. Sem betur fer hafði Vala brugðið á það ráð að lána mér bomsur. Svo ég blotnaði ekki í fæturnar þegar ég öslaði skaflinn.
Þetta er reyndar ekki mynd af hinum einu sönnu þetta eru meira svona 7.bekkur 1998:)

Jæja sagan heldur áfram þegar ég við erum komnar frá húsinu og út á götu þá tekur nú ekki mikið betra við því þar hefur ekkert verið rutt. Einungis nokkrir bílar búnir að keyra og við gátum því bjargað okkur með því að ganga í troðningnum. Jæja nokkrir metrar búnir og ARNA bommmmmm á rassinn, fín lending því snjórinn var mjúkir og blautur líka.
Stóð upp hið snarasta og varð ekki meint af, en Vala vinkona hún hló og hló og hló...
 
Ég erfi það nú ekki við hana því þetta var fyndið. Hún verður án efa komin með enn meiri magavöðva þegar vist minni hjá henni er lokið því hún hlær svo mikið af mér, ekki endilega með mér.

Þegar við komum í skólann var einn bíll fastur og annar nærri því fastur og þó ekki. Eina sem virtist duga í morgun var góður jeppi og góðar bomsur.

Ég stautaðist fram úr þessari blessuðu kennslu í morgun, kenndi áttunda og níunda bekk. Gekk bara ágætlega! Við Vala tókum svo sjöunda bekkinn saman. Þau eru dúllur.

Annars líður mér vel ekki yfir neinu að kvarta. Tók myndir af snjónum skelli þeim inn um helgina þegar ég er búin að ná í snúruna. Bíðið bara spennt!

Kær kveðja Arna sem fer heim um helgina og aftur 29.október.. Vona bara að veður og færð leyfi það:)
KISSKISS

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 09:07:48 / Arna

Varmahlíð

Sælir Kollegar mínir..
Í dag og akkurat núna er ég stödd á kennarastofunni í Varmahlíðarskóla í Skagafirði. Það er ekkert nema gott um það að segja. Er að bíða eftir að fara í tíma í íslensku hjá 9.bekk og Óla beauty. Er að fara að kenna Gísla sögu Súrssonar sem var mitt uppáhald á sínum tíma. Þarf þó örlítið að rifja upp og reyna að muna.. Vona að andinn komi yfir mig ekki seinna en í dag.

En annars er ekkert nýtt að frétta ég verð hér næstu 4 og hálfa vikuna að kenna. Bý hjá Völu minni og Helga og hef það gott á tvíbreiðu rúmi með tvo kodda og tvíbreiða sæng. Yndislegt

Um helgina er stefnan sett á að fara til ömmu og afa og hafa það kósý. Hvort Gulli minn komi þangað er alveg óráðið, fer eftir veðri sunnan lands því ef vel viðrar þá verður hann að vinna aukaver í Mosó og afla fjár á þessum bestu og verstu..
Talandi um það þá verð ég að segja að gubban er ekki bara komin upp í háls heldur er hún komin alveg upp úr mér af öllu þessu tali um kreppu og gjaldþrot. Þó er margt ágætt við þessa margrómuðu kreppu. Fjölskyldan færist saman allir verða glaðari við minna tilefni en áður og pólverjarnir flykkjast suður á bóginn með farfuglunum. Nú liggur leiðin bara upp á við ef marka má nýjustu fréttir.. Vonum fréttatímarnir fari að snúast um eitthvað skemmtilegra en krepputal.

Það er allt gott að frétta af mér og mínum. Allir dafna vel í kreppunni og ég er hress á kennarastofunni í Varmahlíð..
Eigi þið góða viku Arna

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 14:18:41 / Arna

Með krafta í kögglum??

Eða bara ekki með krafta..
Ég er allavega ekki með bloggkrafta þessa dagana, eða vikurnar.
Sumarið var með eindæmum gott.. haustið ekki eins gott og október byrjaði heldur betur með krafti..
í gær var veiðiskapur í Rangá og veiddi ég fiskifælan að sjálfsögðu engan fisk. Gulli og Raggi náðu þremur löxum og einum urriða. Engin met afli en betra en ekkert. Á heimleiðinni byrjaði að snjóa í Kömbunum og það ágerðist bara eftir því er nær dróg Reykjavíkina.
Ég var að þessu sinni sem oftar bílstjórinn og gekk alveg prýðilega þar til við komum að hringtorginu við Rauðavatn, þá neitaði Rex að beygja og tók hringtorgið bara beint:S það leit ekki vel út en allt fór að lokum betur en á horfðist því engin slys urðu á fólki né bíl. Ég kom okkur að lokum heilu á höldnu heim í Háholtið við mikinn fögnuð viðstaddra... Ég hef aldrei á ævinni flokkað sjálfa mig í hóp óökuhæfraökumanna og dagurinn í gær er engin undantekning.  Ég vil frekar kenna mikilli tjöru á dekkjum og skyndilegri veghálku algjörlega um þessi mistök í hringtorginu en ekki aðgátarleysi eða dómgreindarleysi að minni hálfu. :s

Þar sem ég þjáist af lítilli þolinmæði en einstaklega mikilli jákvæðni í garð lesenda þessarar síðu langaði mig að henda inn eins og einum pistli, athuga viðbrögð og létta á sálartetrinu.
Leyfi  þessari væmnu mynd að fljóta með í tilefni dagsins í dag!!

(sjái þið hallærisleikann í þessari mynd??)

» 17 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 15:53:11 / Arna

Sumarið 2008

Þá er eflaust kominn tími á nýtt slúður frá mér. Það er annað hvort það eða hætta þessu alveg.

Sumarið hefur verið ansi fljótt að líða, komin verslunarmannahelgi og þá er aldeilis farið að síga á seinni hlutann.
Mánudaginn 28. júlí eignaðist ég bróðurson nr.2 hann fær nafn eftir helgi og ég læt ykur vita hvað varð fyrir valinu.
Annars efa ég það stórlega að allir mínu diggu aðdáendur hafi haldið tryggð við síðuna mína og skrif eftir að halla fór undan fæti í dugnaði mínum við að skrifa. Ég hugsa að ég komi rosa sterk inn núna. Bíðið bara spennt...

Annars hefur sumarið verið með eindæmum gott veðurblíða og hagsæld hafa einkennt júní og júlí mánuðu. spennandi að sjá hvað ágúst ber í skauti sér.
Ég er búin að ferðast þó nokkuð það sem af er. Fór til Rhodos, fór á Hvammstanga oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fór á Hofsós til Völu minnar  á Blönduós til ömmu. Keyrði Vatnsnes hringinn með Söru minni, fór Hundrað sinnum í Borgarfjörðinn. fórum á ættarmót hjá Gulla í Þverárrétt í Þverárhlíð í lok júlí. héldum svo þaðan beint í ferðalag á Snæfellsnes tókum hringinn þar, gistum eina nótt í Grundarfirði héldum svo sem leið lá á í Hólminn og þaðan yfir í Búðardal og tókum svo Laxárdalsheiðina niður í Hrútafjörð og keyrðum til ömmu á HVT. komum við á Reykjum í bakaleiðinni og fórum svo í Borgarfjörðinn og höfðum þar nætursetu. 
Eftir helgi er sumarfríið víst búið og alvaran tekur við. sem er ekkert nema gott málþar sem það tekur á að vera svona í fríi veit ekki hvernig það á eftir að ganga að vakna á morgnanna þar sem sólarhringurinn er alveg orðinn öfugsnúinn hjá mér:) 

En vonandi nennir einhver að lesa þetta og gaman væri ef einhverjir sæju sér fært að skilja eftir eins og eitt komment á kellu;)
Bið að heilsa öllum og líði ykkur allatf sem best...
kisskiss
Adda 

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 15:48:53 / Arna

WELLLLLLL

Alveg kominn tími á smá blogg frá mér...

Það er sem sagt komið nýtt ár og fjórði mánuðurinn hálfnaður! Það helsta í fréttum er að við erum flutt í Háholtið og það er bara geggjað. Allt fínt og flott þar... Allir velkomnir í heimsókn.
Annars er allt við það sama bara... Bara skóli-vinna-borða-sofa-klappa-Gulla-og Breka-fara í sveitina-vera heima.... og fátt annað enda bara 24 stundir í sólarhringnum..
Flestum hefði nú fundist nóg að vera í rúmalega fullu háskólanámi en það er dýrt að lifa og ég er í tæplega 80% vinnu með:S var svo líka að þjálfa en hætti því eftir áramót því það var bara allt of mikið enda var ég alveg eins og þeytispjald allan daginn.. vinna-skóli-vinna-þjálfa þetta var nú meiri keyrslan enda ekkert stutt á milli Bakka og KHÍ... En þetta er allt gott og blesað og gott að hafa nóg að gera..

Ég hef líka alveg tíma um helgar til að læra og svona!!! Þar sem það eru endalaus verkefni.. og 3 ritgerðir í smíðum núna:S

Hlakka svo til sumarsins rosaleg fortíðarþrá sem grípur mig annaðslagið!!!

Svo er bara rétt rúmur mánuður í Rhodos sem er fínt...


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 19:58:07 / Arna

Næstum búin að gleyma lykilorðinu..

En það er allt í lagi allir hættir að lesa bloggið:S

En í dag er 1. desember sem segir okkur að það eru 23 dagar til jóla og 4 dagar í að ég komist í jólafrí..

1. í aðventu á morgun og í dag á Breki afmæli:)

Hann er 2ja ára pjakkurinn og búinn að fara í bað og fá smá dekur í formi kjötstykkis;) hehe

En jæja ætla að halda áfram að læra fyrir siðfræðina og taka nytjastefnuna-gagnsemishyggjuna, Mill og Bentham í nefið.

Tjuss


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Textabox
Ég heiti Arna, fædd á Hvammstanga 1985. Á kærasta sem er bestastur. Ætla að búa í sveit. Hef ólæknandi áhuga á Íslenskum mat, íslenskum bíómyndum, íslenskri tónlist og eiginlega öllu íslensku. Elska að borða góðan mat. Elska vini mína og fjölskylduna...


Könnun
Hvað á ég að gera eftir BS gráðuna
Fara í mastersnám
2 atkvæði

Fara að vinna sem kennari
3 atkvæði

Flytja út á land og hefja búskap
5 atkvæði

Gerast aumingi með hor og slef
3 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 13